Fréttir | 16. apríl 2014 - kl. 16:16
Páska-Zumba-Partý

Laugardaginn 19. apríl næstkomandi verður haldið Zumba partý í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi frá klukkan 13 til 15. Kennari eru Linda Björk Ævarsdóttir alþjóðlegur Zumba kennari. Zumba er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna og að sjálfsögðu fyrir bæði kynin. Verð: 1.500 krónur en 1.000 krónur fyrir 9-15 ára.

Dansaðu þig í form með einföldum sporum, skemmtilegri tónlist og góðum félagsskap.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga