Fréttir | 16. apríl 2014 - kl. 18:37
105 m.kr. hagnaður af rekstri Húnaþings vestra
Ársreikningur sveitarsjóðs Húnaþings vestra og fyrirtækja fyrir árið 2013 var
samþykktur á fundi sveitarstjórnar í dag. Niðurstaða aðalsjóðs var jákvæð um
83,2 milljónir króna en hafði verið áætluð neikvæð um 2,7 milljónir króna. Niðurstaða
samstæðu A og B hluta var jákvæð um 105 milljónir króna samanborið við 51,2
milljón króna jákvæða afkomu árið 2012.
Í tilkynningu frá sveitarstjórn segir
að niðurstaðan sé mjög ánægjuleg en frá því að
reikningsskilum sveitarfélaga var breytt á árinu 2002 hafi aldrei náðst betri
árangur í rekstri sveitarfélagsins en á árinu 2013.
Rekstrarhagnaður A
og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði árið 2013 nam 183,7 milljónum
króna. Afskriftir námu 43,6 milljónum
króna. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur hjá A- og B hluta námu 32 milljónum króna. Rekstrartekjur voru um 68 milljónum króna hærri en ráð
var fyrir gert, útsvar var 14 milljónum króna hærra en í áætlun og aðrar
tekjur 54 milljónum króna hærri. Rekstargjöld
voru 27 milljón krónum lægri en áætlun ársins.
Í tilkynningunni segir að í því
sambandi beri að þakka stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir aðhald
í rekstri á árinu 2013. Segja megi að reglur sem sveitarstjórn Húnaþings vestra
samþykkti á árinu 2013 um innra eftirlit með fjármálum sveitarfélagsins hafi þegar
skilað árangri m.a. hvað varðar bætta fjármálastjórn og
eftirlit með því að fjárhagsáætlunum sé fylgt.
Einnig segir í tilkynningunni að sé litið til niðurstöðu
ársreiknings ársins 2013 hafi markmið sveitarstjórnar Húnaþings vestra um bætta
fjármálastjórn náðst og megi í því samhengi nefna að engin ný lán voru tekin á
árinu 2013 og ekki sé gert ráð fyrir nýjum lántökum á árinu 2014.
Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins á árinu 2013
námu alls 760 milljónum króna og höfðu lækkað frá árinu 2012 um 58,4 milljónir
króna. Lífeyrisskuldbindingar námu í árslok 2013 96,6 milljónum króna,
langtímaskuldir námu 518 milljónum króna og skammtímaskuldir 145 milljónum króna.
Eigið fé samstæðunnar í árslok 2013 nam 825 milljónir króna. Handbært fé í árslok
2013 var 187,4 milljónir króna en var í upphafi árs 118,5 milljónir króna og
hefur það aldrei verið hærra hjá Húnaþingi vestra. Fjárfestingar ársins 2013
námu 28,8 milljónum króna. Hlutfall veltufjár frá rekstri samstæðunnar var
14,2% en viðmið sem gjarnan er haft til hliðsjónar er 10%.
Í tilkynningu frá sveitarstjórn Húnaþings vestra segir
að samkvæmt viðmiði Eftirlitsnefndar með fjármálum
sveitarfélaga hafi nefndin afskipti af þeim sveitarfélögum þar sem hlutfall
skulda og skuldbindinga af samanlögðum tekjum A- og B hluta sé umfram 150%. Í
Húnaþingi vestra sé þetta hlutfall 64% samkvæmt ársreikningi 2013 en var 76% á
árinu 2012 og 84,8% á árinu 2011. Skuldahlutfall samstæðu A- og B-hluta í
Húnaþingi vestra hafi aldrei verið lægra frá því að reikningsskilum
sveitarfélaga var breytt árið 2002.
„Þrátt fyrir glæsilega niðurstöðu ársreiknings
Húnaþings vestra fyrir árið 2013 er ástæða til að vara við mögulegum áhrifum
ytri þátta á framtíðarrekstur sveitarfélagsins. Þar skal sérstaklega nefna
verðbólgu- og launaþróun og vaxtastig en þá þætti þarf sveitarstjórn m.a. að
hafa í huga varðandi ákvarðanatöku um rekstur og fjárfestingar á næstu árum.
Mikilvægast er að varðveita þann góða árangur sem náðst hefur í fjármálastjórn
sveitarfélagsins á síðustu árum og forðast að stefna sveitarfélaginu á braut
aukins rekstrarkostnaðar og skuldasöfnunar. Eftirsóknarverðara er að styrkja
fjárhagsstöðu sveitarfélagsins enn frekar og leggja þannig grunn að aukinni
getu þess til fjárfestinga og framkvæmda með hag íbúanna að leiðarljósi,“ að
því er segir í tilkynningunni.