Bjarnþóra. Mynd: Laxasetur.is
Bjarnþóra. Mynd: Laxasetur.is
Fréttir | 22. apríl 2014 - kl. 13:18
Nýr umsjónarmaður hjá Laxasetrinu

Bjarnþóra M Pálsdóttir var á dögunum ráðin sem umsjónarmaður Laxaseturs Íslands frá 1. maí næstkomandi. Bjarnþóra er nemi í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum og búsett á Blönduósi. Hún er mikill náttúruunnandi og hefur brennandi áhuga á veiði af ýmsum toga og ekki síst eldamennsku á bráðinni eftir góða veiði, að því er fram kemur á vef Laxasetursins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga