Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 23. apríl 2014 - kl. 12:16
Sumarstörf á Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á vef sínum eftir flokksstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Skilyrði er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og reynsla af sambærilegum störfum kostur. Jafnframt eru auglýst laus til umsókna sumarstörf námsmanna í samstarfi við Vinnumálastofnun. Störfin eru við ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins m.a. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli.

Umsóknareyðublöð má fá á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur um flokkstjórastörf er til 9. maí næstkomandi en umsóknarfrestur vegna sumarstarfa námsmanna verður auglýstur síðar.

Skráning í vinnuskóla fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að vinnuskólinn hefji störf um mánaðarmót maí –júní.

 Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga