Blönduskóli
Blönduskóli
Fréttir | 24. apríl 2014 - kl. 08:48
Sumarskemmtun Blönduskóla

Hin árlega sumarskemmtun Blönduskóla verður haldin í dag, sumardaginn fyrsta í Félagsheimilinu á Blönduósi. Nemendur í 1. - 7. bekk sjá um öll skemmtiatriði undir leiðsögn kennara.

Skemmtunin hefst klukkan 14:00 og aðgöngumiðinn kostar 1.000 krónur, en ókeypis aðgangur er fyrir börn fædd 2001 (7. bekk) og yngri.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga