Fréttir | 24. apríl 2014 - kl. 20:19
Frá Leikfélagi Blönduóss

Nú að loknum sýningum á Dagbókinni hans Dadda viljum við hjá leikfélaginu þakka öllum þeim sem hafa stutt við bakið á okkur með góðri mætingu á þær sjö sýningar sem í boði voru. Eins og flestir vita var ein aukasýning í lokin til styrktar Páli Þórðarsyni og fjölskyldu hans en Páll berst við erfið veikindi. Í stuttu máli sagt erum við afskaplega þakklát fyrir frábærar viðtökur og stuðning en allur aðgangseyrir og aðrir styrkir rann óskiptur til fjölskyldunnar.

Gleðilegt sumar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga