Fréttir | 11. júlí 2014 - kl. 10:48
Íslenski Safnadagurinn í Heimilisiðnaðarsafninu

Íslenski Safnadagurinn er á sunnudaginn og eins og venja er til mun vera sérstök dagskrá í Heimilisiðnaðarsafninu frá kl. 14:00. Sýnt verður hvernig tekið var ofan af, kempt, spunnið og prjónað. Einnig sýndur margskonar útsaumur, auk þess heklað, gimbað og slegið í vef. Gestum gefst kostur á að spreyta sig á viðkomandi vinnubrögðum.

Vakin er athygli á Sumarsýningu safnsins „Sporin mín“ eftir Þórdísi Jónsdóttur. Aðgangseyrir er kr. 900 en kr. 700 fyrir eldri borgara, öryrkja og hópa. Ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Innifalið í aðgangseyri er kaffi ásamt smakki af bóndakökunum góðu sem algengar voru á kaffiborðum landsmanna hér áður fyrr.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga