Fréttir | 11. júlí 2014 - kl. 14:07
Kennara vantar til starfa við Blönduskóla.
Kennara vantar til starfa við Blönduskóla.
Um er að ræða eina og
hálfa stöðu.
Kennslugreinar:
1.
Umsjónar- og almenn kennsla á yngsta stigi.
2.
Sérkennsla, 50% staða, afleysing í eitt ár.
3.
Kennsla íslensku á unglingastigi, 43% staða.
Umsækjendur þurfa að hafa réttindi til að kenna í grunnskóla. Æskilegt er
að viðkomandi hafi reynslu af starfi í grunnskóla með einstaklingsmiðaðar
áherslur. Góð tölvukunnátta, góðir skipulags-, samskipta- og samvinnuhæfileikar
eru skilyrði.
Í Blönduskóla eru um 130 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólaárið 2014 - 2015
hefst vinna við innleiðingu þróunarverkefnisins Orð af orði og gert er ráð
fyrir að allir starfsmenn skólans taki þátt í þeirri vinnu. Á heimasíðunni www.blonduskoli.is er að finna fréttir og
myndir úr starfi skólans og ýmsar nauðsynlegar upplýsingar.
Blönduós er bær í alfara leið, með allri helstu þjónustu og fjölbreyttum
afþreyingarmöguleikum.
Frekari upplýsingar
gefur Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri (thorhalla@blonduskoli.is) í síma 892-4928.
Umsóknarfrestur er til
13. júlí nk. og skal umsókn skilað með ferilskrá á netfang skólastjóra: thorhalla@blonduskoli.is.