Tilkynningar | 19. júlí 2014 - kl. 21:42
Heimilisiðnaðarsafnið er opið alla daga frá klukkan 10:00 – 17:00. Sérstök
athygli vakin á sýningu Þórdísar Jónsdóttur "Sporin mín". Á morgun
sunnudag klukkan 14:00 mun Jóhanna Erla Pálmadóttir, flytja fyrirlestur sem hún
nefnir "Hannyrðakonur í Húnaþingi". Eftir fyrirlesturinn er boðið upp
á kaffi og kleinur. Þá munu nokkrar konur sitja við útsaum.