Fréttir | 21. júlí 2014 - kl. 18:20
Fjallaskokk USVH 2014

Fjallaskokk Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga fer fram á fimmtudaginn, 24. júlí, en þá verður gengið, skokkað eða hlaupið frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Um er að ræða 12 km leið og hækkun á milli 400-500 metra.  

Fjallaskokk USAH er keppni þar sem gildir að vera fyrstur yfir fjallið, en að sjálfsögðu getur hver og einn gert þetta eftir sínu höfði, keppt við aðra, sjálfan sig eða farið leiðina án þess að vera að keppa yfirleitt. Aðalatriðið er að vera með og hafa ánægju af þessu.

Aldursskipting er svo:
15 ára og yngri,
16-49 ára og
50 ára og eldri.

Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Einnig verða veittir verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig. Ræst verður í tveimur flokkum, flokki göngufólks og flokki trimmara/keppnisfólks.

Göngufólk: Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 16:00 og verður lagt af stað með rútu kl. 16:15. Áætlaður komutími að Grund er kl. 16:35. Ræst verður stundvíslega kl. 16:45. Göngufólk keppir ekki til verðlauna.

Trimmarar og keppnisfólk: Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 17:00 og verður lagt af stað með rútu kl. 17:15. Áætlaður komutími að Grund er kl. 17:35. Ræst verður stundvíslega kl. 17:45.

Björgunarsveitin Húnar verður á staðnum og mun veita leiðsögn yfir fjallið og aðstoð ef þörf er á. Leiðin er einnig stikuð. Þátttakendum er bent á að hafa með sér góða skó, hlý föt og góða skapið. Þátttaka tilkynnist á netfangið usvh@usvh.is eða til skrifstofu USVH í síma 865-2092. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og í hvaða aldursflokk er verið að skrá. Þátttökugjald er 1.500 kr.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga