Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það verður mikið um að vera í Húnaþingi vestra þessa vikuna. Hátíðin Eldur í Húnaþingi hefst á miðvikudaginn og stendur fram á sunnudag, Fjallaskokk USVH fer fram á fimmtudaginn, Grettishátíð hefst á föstudaginn og selatalningardagurinn mikli fer fram á sunnudaginn.
Eldur
í Húnaþingi
Ýmsir
viðburðir hafa skipað sér fastan sess á hátíðinni Eldur í Húnaþingi. Melló
Músíka er einn af þeim. Sá viðburður fer fram á fimmtudagskvöldi og er
vettvangur þar sem heimamenn koma fram og flytja tónlist, ýmist frumsamin eða
ábreiður af lögum annarra.
Undanfarin ár hafa verið haldnir tónleikar í Borgarvirki á föstudagskvöldinu. Listamenn eins og Ragnhildur Gíslad., KK, Egill Ólafsson, Hörður Torfa, Regína Ósk og okkar eigin Ásgeir Trausti hafa haldið tónleika þar í guðs grænni náttúrunni. Borgarvirki er einstakur staður og virkilega sérstakt að upplifa tónleika þar.
Á laugardeginum er svo fjölskyldudagurinn haldinn hátíðlegur. Undanfarin ár hefur verið boðið upp á andlitsmálningu og hoppukastala fyrir yngri kynslóðina og grill fyrir alla fjölskylduna. Ásamt því að keppt er á milli fyrirtækja og ungir sem aldnir spreyta sig í sápufótboltakeppni.Hátíðinni lýkur svo á laugardagskvöldinu með dansleik. Undanfarin ár hafa hljómsveitir á borð við Buff, Í Svörtum Fötum, Skítamóral og Sniglabandið skemmt hátíðargestum á lokadansleiknum. Nánari upplýsingar um hátíðina Eldur í Húnaþingi má finna á www.eldurhunathing.com.
Grettishátíð
Grettishátíðin
er haldin í Grettisbóli á Laugarbakka 25.-27. júlí. Hátíðin hefst með
víkinganámskeiði fyrir börn sem hefst á morgun þriðjudag. Á hátíðinni verður
handverk úr héraðinu til sýnis og vinnubrögð kennd af fornum sið. Haldin verða
nokkur örnámskeið þar sem gestir geta kynnst fjölbreyttri handverksframleiðslu.
Á útisvæði Grettisbóls verða víkingaleikir í boði fyrir börn á öllum aldri. Miðfjarðarleikarnir
í Kubb fara fram á laugardaginn og fjölbreytt handverk og víkingabúningar verða
til sýnis og sölu á svæðinu. Grettisbikarinn, aflraunakeppni karla og kvenna
fer svo fram á sunnudaginn. Grettisbikar er veittur til sterkasta karlmanns og
konu úr Húnaþingi vestra. Skráning í aflraunakeppnina verður á staðnum og á grettistakses@gmali.com. Nánari
upplýsingar um Grettishátíðina má finna á www.grettistak.is.
Selatalningin
mikla
Sunnudaginn 27. júlí fer Selatalningin mikla. Taldir verða selir á allri
strandlengjunni á Vatnsnesi á sama tíma.
Þetta er í áttunda sinn sem talningin fer fram. Talningin fer fram með
aðstoð sjálfboðaliða. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eru beðnir um að skrá
sig með því að senda póst á selasetur@selasetur.is.
Sjá nánar á www.selasetur.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |