Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:52 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Skipunarbréf til þeirra níu sem fá sýslumannsembætti, samkvæmt nýjum lögum um
sýslumannsembætti, sem taka gildi þann 1. janúar næstkomandi, verða send til
viðkomandi úr innanríkisráðuneytinu í vikunni, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Eins og fram hefur komið í fréttum verður sýslumannsembættum á
landinu fækkað úr 24 í 9 og sömuleiðis verður lögregluumdæmum og þar með
embættum lögreglustjóra fækkað úr 15 í 9.
Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að Bjarni Stefánsson,
sýslumaður á Blönduósi, verði sýslumaður á Norðurlandi vestra. Aðalstöðvar
sýslumanns á Norðurlandi vestra verða á Blönduósi, en aðalstöðvar lögreglunnar
verða á Sauðárkróki.
Ef heimildir Morgunblaðsins eru réttar er niðurstaðan í
samræmi við umræðuskjöl sem innanríkisráðuneytið birti í byrjun síðasta mánaðar
og ætluð voru til kynningar og samráðs varðandi reglugerð um umdæmismörk og
starfsstöðvar lögregluembætta annars vegar og sýslumannsembætta hinsvegar.
Í umræðuskjölunum kemur
m.a. fram að gert er ráð fyrir að aðalskrifstofa í umdæmi sýslumannsins á
Norðurlandi vestra verði á Blönduósi. Gert er ráð fyrir að sýsluskrifstofa verði
á Sauðárkróki. Aðalskrifstofa sýslumanns er aðsetur hans og verður þar veitt
öll sú þjónusta sem sýslumönnum ber að veita samkvæmt lögum, reglugerðum og
öðrum stjórnvaldsfyrirmælum. Á sýsluskrifstofum verður veitt sama þjónusta og á
aðalskrifstofu sýslumanns.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |