Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:02 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:02 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:02 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:02 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:02 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:02 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi mun sameinast heilbrigðisstofnunum á
Sauðárkróki og í Fjallabyggð, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og
heilsugæslustöðvunum á Dalvík og Akureyri þann 1. október næstkomandi. Heilbrigðisráðherra
gaf út á dögunum reglugerð um frekari sameiningu heilbrigðisstofnana. Samkvæmt
henni verða stofnanir sameinaðar í þremur heilbrigðisumdæmum.
Á vef
innanríkisráðuneytisins segir að með þessu teljist lokið sameiningu
heilbrigðisstofnana í öllum
heilbrigðisumdæmum landsins, eins lög um heilbrigðisþjónustu frá 2007 gera ráð
fyrir.
Heilbrigðisstofnanirnar á
Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, heilsugæslustöðvarnar á Dalvík og Akureyri
og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun
Norðurlands.
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunin á Patreksfirði verða sameinaðar í
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Heilbrigðisstofnanir
Suðausturlands, Suðurlands og í Vestmannaeyjum verða sameinaðar í
Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Sameiningarnar taka gildi
1. október og taka þá nýir forstjórar við hinum sameinuðu stofnunum. Stöður
forstjóranna þriggja verða auglýstar lausar til umsóknar og er umsóknarfrestur
til 1. ágúst.
Markmiðið með sameiningu
heilbrigðisstofnana er að styrkja rekstrar- og stjórnunareiningar, auka öryggi
í búa með góðri heilbrigðisþjónustu og nýta fjármuni betur. Með sameiningum
færist ákvarðanataka í auknum mæli frá ráðuneyti til heimamanna.
Í aðdraganda sameininganna
munu verðandi forstjórar ásamt starfsmönnum ráðuneytisins hafa samráð við
sveitarstjórnarmenn á viðkomandi svæðum.
Byggðarráð
Skagafjarðar mótmælir
Byggðarráð
Sveitarfélagsins Skagafjarðar harmar reglugerð heilbrigðisráðherra um
sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi og hefur sent frá sér tilkynning
þar sem mótmæli eru ítrekuð. Þar segir að algjör óvissa sé um hvaða þjónusta ný
stofnun muni veita. Sveitarfélagið Skagafjörður sé í viðræðum við
heilbrigðisráðuneytið um yfirtöku á rekstri Heilbrigðisstofnunarinnar
Sauðárkróki með samningi við Sjúkratryggingar Íslands og mikilvægt sé að
setning reglugerðarinnar hafi ekki áhrif á þær viðræður, sem sé ekki lokið. Byggðarráð
brýnir fyrir stjórnvöldum að hlusta á og virða vilja íbúa við setningu laga og
reglugerða.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |