Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Fréttir | 23. júlí 2014 - kl. 12:53
Sameining heilbrigðisstofnana tekur gildi 1. október

Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi mun sameinast heilbrigðisstofnunum á Sauðárkróki og í Fjallabyggð, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og heilsugæslustöðvunum á Dalvík og Akureyri þann 1. október næstkomandi. Heilbrigðisráðherra gaf út á dögunum reglugerð um frekari sameiningu heilbrigðisstofnana. Samkvæmt henni verða stofnanir sameinaðar í þremur heilbrigðisumdæmum.

Á vef innanríkisráðuneytisins segir að með þessu teljist lokið sameiningu heilbrigðisstofnana í  öllum heilbrigðisumdæmum landsins, eins lög um heilbrigðisþjónustu frá 2007 gera ráð fyrir.

Heilbrigðisstofnanirnar á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, heilsugæslustöðvarnar á Dalvík og Akureyri og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunin á Patreksfirði verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

Heilbrigðisstofnanir Suðausturlands, Suðurlands og í Vestmannaeyjum verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Sameiningarnar taka gildi 1. október og taka þá nýir forstjórar við hinum sameinuðu stofnunum. Stöður forstjóranna þriggja verða auglýstar lausar til umsóknar og er umsóknarfrestur til 1. ágúst.

Markmiðið með sameiningu heilbrigðisstofnana er að styrkja rekstrar- og stjórnunareiningar, auka öryggi í búa með góðri heilbrigðisþjónustu og nýta fjármuni betur. Með sameiningum færist ákvarðanataka í auknum mæli frá ráðuneyti til heimamanna.

Í aðdraganda sameininganna munu verðandi forstjórar ásamt starfsmönnum ráðuneytisins hafa samráð við sveitarstjórnarmenn á viðkomandi svæðum.

Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar harmar reglugerð heilbrigðisráðherra um sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi og hefur sent frá sér tilkynning þar sem mótmæli eru ítrekuð. Þar segir að algjör óvissa sé um hvaða þjónusta ný stofnun muni veita. Sveitarfélagið Skagafjörður sé í viðræðum við heilbrigðisráðuneytið um yfirtöku á rekstri Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki með samningi við Sjúkratryggingar Íslands og mikilvægt sé að setning reglugerðarinnar hafi ekki áhrif á þær viðræður, sem sé ekki lokið. Byggðarráð brýnir fyrir stjórnvöldum að hlusta á og virða vilja íbúa við setningu laga og reglugerða.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga