Fréttir | 25. júlí 2014 - kl. 10:44
Hanna Birna
Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur í kjölfar niðurstöðu sérstakrar
valnefndar um skipan í embætti lögreglustjóra, skipað Pál Björnsson í embætti
lögreglustjóra á Norðurlandi vestra. Embætti lögreglustjóra á landinu verða 9 í
stað 15 með nýjum lögum um lögregluumdæmi og taka breytingarnar gildi um næstu
áramót.
Í tilkynningu
frá innanríkisráðuneytinu segir Hanna Birna Kristjánsdóttir,
innanríkisráðherra:
„Efling
löggæslunnar hefur verið eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar en með
þessum breytingum verða til færri en um leið öflugri embætti. Minni
yfirbygging, fjölbreyttur og sterkur hópur löggæslufólks, tækniframfarir og
bættur búnaður lögreglu stuðlar að því að starfsemi lögreglunnar innan umdæma
verði skipulögð með markvissari hætti. Ég býð nýskipaða lögreglustjóra velkomna
til starfa og er þess fullviss að þeir muni leggja sitt af mörkum við að
tryggja öryggi almennings og öfluga þjónustu á hverjum stað.“
Ráðherra ákveður að höfðu samráði
við viðkomandi lögreglustjóra og aðra hagsmunaaðila hvar í umdæminu aðalstöð
lögreglustjóra verður. Það
verður hlutverk lögreglustjóra að skipuleggja starfsemi lögregluliðanna og
jafnframt að ákveða hvaða starfslið hefur aðsetur á aðalstöð og öðrum
varðstöðvum. Nú þegar hafa
verið birt til kynningar og samráðs umræðuskjöl um umdæmamörk og starfsstöðvar
nýrra embætta og hafa ráðuneytinu borist fjölmargar ábendingar og athugasemdir
sem farið verður yfir með nýskipuðum lögreglustjórum.