Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:18 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:18 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:18 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:18 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:18 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:18 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Blanda er fyrsta laxveiðiáin á landinu til að fara yfir 1000 veidda laxa í sumar en
m.v. tölur sem birtar eru vikulega á vef Landssambands veiðifélaga voru
komnir 1060 laxar á land síðastliðinn miðvikudag. Laxinn virðist vera dreifður
um alla á því vel hefur veist á öllum svæðunum fjórum. Á vef Laxár, leigutaka árinnar, segir að veiði á
svæði III sé að nálgast 50 laxa og sömu sögu sé að segja um svæði II. Þá hafi
einnig verið ágætis gangur á svæði IV.
Sagt er frá því á vefnum Vötn og veiði að veiðst hafi stórlax í
Víðidalsá í vikunni. Laxinn var 102 sentímetrar að lengd, líklega á bilinu
22-23 pund. Laxinn kom af neðsta svæðinu og var hinn glæsilegast eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd sem fengin er að láni af Facebook síðu Víðidalsár.
Víðidalsá er nú komin í 190 laxa en alls er þar veitt á níu stangir.
Alls hafa verið veiddir 243 laxar í Vatnsdalsá en þar
er veitt á sjö stangir. Er það heldur færri laxar en á sama tíma í fyrra en þá
voru komnir um 320 laxar á land. Miðfjarðará er komin í 471 lax en þar er veitt
á tíu stangir. Er það helmingi minni veiði en á sama tíma í fyrra þegar áin var
komin yfir 1000 laxa. Laxá á Ásum er komin í 331 lax en einungis er veitt á
tvær stangir í ánni. Á sama tíma í fyrra var búið að veiða yfir 400 laxa í
Ásunum.
Almennt sé er veiðin í húnvetnsku ánum heldur minni sem
af er sumri í samanburði við sama tíma í fyrrasumar. Samt sem áður geta
veiðimenn í Húnaþingi vel við unað því af helstu veiðiám á landinu eru árnar á
Norðurlandi að standa sig vel.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |