Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á vef Björgunarsveitar Húna er sagt frá
fjölbreyttum verkefnum sveitarinnar í síðustu viku. Fyrsta verkefni hennar var
að vinna að undirbúningi Fjallaskokksins yfir Vatnsnesfjall og voru farðar tvær
vinnuferðir yfir fjallið til að laga, bæta og yfirfara merkingar.
Björgunarsveitarmenn mönnuðu svo þrjár stöðvar á meðan skokkið stóð yfir.
Björgunarsveitin var með flugeldasýningu í tengslum við
opnunarhátíð Elds í Húnaþingi. Var sýningin haldin á norðurgarði Hvammstangahafnar. Allan veg að undirbúning
sýningarinnar hafði Ævar Smári.
Á þriðjudagskvöldið óskaði lögreglan eftir að sveitin
aðstoðaði ferðafólk sem átti í vandræðum með bíl sinn á Víðidalstunguheiði en
hann sat fastur í drullupytti á veginum. Um eina og hálfa klukkustund tók að
losa bílinn sem var stór Dodge pallbíll með Camper á pallinum. Ferðafólkinu var
svo fylgt niður að Hrappstöðum.
Á miðvikudaginn kom önnur beiðni um aðstoð en þá hefði
annar bíll fests í sama pytti á Víðidalstunguheiði. Betur gekk að ná þeim bíl
upp úr pyttinum enda léttari en sá sem festi sig á þriðjudagskvöldinu. Eftir að
bílnum var náð upp var ferðafólkinu fylgt niður af heiðinni. Í báðum þessara
tilvika hafði þetta ferðafólk hafið ferðalag sitt í Húsafelli, en
Víðidalstunguheiðin er lokuð að norðanverðu.
Á föstudaginn eftir hádegi kom svo beiðni um
verðmætabjörgun á Holtavörðuheiði en flutningabíll með trailer lenti utan vegar
við Bláhæð. Unnið var við losun farmsins og ná bílnum upp á veg fram á kvöld.
Sjá nánar á vef Húna.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |