Mynd: Hvalfjarðarsveit
Mynd: Hvalfjarðarsveit
Fréttir | 28. júlí 2014 - kl. 14:33
Skúli ráðinn sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit

Skúli Þórðarson, fyrrverandi sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit og mun hann hefja störf um miðjan næsta mánuð. Skúli var sveitarstjóri í Húnaþingi vestra frá árinu 2002 til 2014, en hann lét af þeim störfum í vor. Áður var hann bæjarstjóri á Blönduósi frá 1994 til 2002.

Skúli var framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 1993 til 1994. Þá hefur hann gegnt fjölmörgum trúnaðar- og ábyrgðarstörfum fyrir hönd sveitarfélaga í Austur- og Vestur- Húnavatnssýslum og á Norðurlandi vestra undanfarin 20 ár.

Skúli lauk MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2012 og BA-gráðu í stjórnmálafræði frá sama skóla árið 1991.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga