Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fyrstu sendinganna af íslensku kanínukjöti er að vænta á markað í haust og
kemur það frá ræktun Birgit Kositzke á Hvammstanga. Kanínunum er slátrað í
sláturhúsi KVH á Hvammstanga sem er komið með öll tilskilin leyfi til vinnslu á
þessari afurð sem hefur verið sjaldséð í íslenskum verslunum og á borðum
neytenda.
Fjallað er um Birgit og kanínubúskap hennar í
Morgunblaðinu í dag. Þar segir hún að kanínukjötið sé hvítt, mjúkt og meyrt og
sjálfsagt sé ekki úr vegi að líkja því við kjúklinga- eða svínakjöt þó bragðið
sé samt öðruvísi. Birgit, sem er frá Þýskalandi, hefur búið hér á landi frá
árinu 2007. Þá flutti hún strax norður í Húnavatnssýslur og hefur þar sinnt
ýmsum störfum, til dæmis við handverk, í sláturhúsi, við búskap og fleira.
Eftir þriggja ára búsetu hér á landi stóð Birgit
andspænis þeirri spurningu hvort hún ætti að snúa aftur til Þýskalands ellegar
vera hér lengur og skapa sína framtíð hér. Síðari kosturinn varð niðurstaðan.
Fyrst horfði Birgit til þess að fara í sauðfjárbúskap en sá fljótt að slíkt
væri varla á færi konu sem er ein á báti. Því varð úr að hún fór í ræktun
holdakanína, að því er segir í Morgunblaðinu í dag.
Þann 14. júní 2011 fjallaði Húnahornið um Birgit og
kanínubúskap hennar en þá var hún að hefja verkefnið og stefndi á að reka
kanínubú með um 250 lífdýr og tæplega 6.000 sláturdýr. Verkefnið hlaut m.a.
styrk frá Atvinnumálum kvenna.
Í Morgunblaðinu í dag segir að nú sé verið að útbúa
aðstöðu til ræktunar á bænum Syðri-Kárastöðum á Vatnsnesi og séu í hús komin um
50 læður og 150 ungar. Þeir verði aldir til hausts en fara þá til slátrunar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |