Fréttir | 28. júlí 2014 - kl. 12:01
Sögustund helguð Sturlu Þórðarsyni

Sögustund tileinkuð Sturlu Þórðarsyni sagnaritara verður í Kakalaskála við Kringlumýri í Skagafirði þriðjudaginn 29. júlí klukkan 20. Einar Kárason rithöfundur og Sigurður Hansen sagnaþulur flytja erindi í tilefni af 800 ára fæðingardegi skáldsins en Sturla skrifaði m.a. Íslendingasögu þar sem segir frá einu róstusamasta tímabili Íslandssögunnar Sturlungaöld.

Karlaraddir úr Skagfirska kammerkórnum taka einnig nokkur lög af þessu tilefni.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga