Fréttir | 29. júlí 2014 - kl. 09:40
Kaffihlaðborð í Hamarsbúð um verslunarmannahelgina
Frá Húsfreyjunum

Kaffihlaðborð með rjómapönnukökum, smurbrauði og öðru fjölbreyttu meðlæti að hætti Húsfreyjanna verður í Hamarsbúð á Vatnsnesi laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. ágúst næstkomandi. Opið verður á milli klukkan 12 og 18 báða dagana.

Verð kr. 2000 en kr. 800 fyrir 6 - 12 ára.

Kristín Jóhannesdóttir (Stella okkar) sýnir ljósmyndir.

Verið velkomin í Hamarsbúð.

Hamarsbúð er fyrir norðan Hvammstanga við veg 711. Þar er einnig Hamarsréttin en hún er afar fallega staðsett.

Húsfreyjur í Hamarsbúð er félagsskapur kvenna með það að markmiði að halda í hefðir og bjóða upp á hefðbundinn mat um leið og þær styrkja gott málefni í héraði. Húsfreyjurnar eru einnig þekktar fyrir árlegu sviðamessu sína í október.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga