Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:04 0 0°C
Laxárdalsh. 13:04 0 0°C
Vatnsskarð 13:04 0 0°C
Þverárfjall 13:04 0 0°C
Kjalarnes 13:04 0 0°C
Hafnarfjall 13:04 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 29. júlí 2014 - kl. 12:48
Selir taldir á Vatnsnesi og Heggstaðanesi
Aðeins færri selir nú heldur en í fyrra

Selatalningin mikla var haldin á vegum Selaseturs Íslands á sunnudaginn. Talningin hefur farið fram árlega síðan árið 2007 og var þetta því í áttunda sinn sem hún fer fram. Markmið talningarinnar er að fylgjast með fjölda og staðsetningu landsela á Vatnsnesi og Heggstaðanesi, ásamt því að gefa almenningi tækifæri á að kynnast og taka þátt í rannsóknarstarfsemi Selaseturs Íslands.

Selir voru taldir á allri strandlengjunni á Vatnsnesi og Heggstaðanesi  í Húnaþingi vestra, samtals um 100 km. Sjálfboðaliðar aðstoðuðu sérfræðinga Selasetursins við talninguna.  Í tilkynningu frá Selasetrinu, sem finna má á vef setursins, segir að með því móti gefist færi á að kanna stórt svæði á mjög stuttum tíma. Í ár tóku yfir 30 manns þátt í talningunni og voru það bæði erlendir og íslenskir ferðamenn á leið um landið. Sumir bændur töldu sjálfir í sínu landi og  selaskoðunarbáturinn Brimill sem gerir út frá Hvammstanga, aðstoðaði einnig við talninguna.

Í ár sáust samtals 706 selir á svæðinu (aðallega landselur). Það eru aðeins færri selir en sáust 2013, en þá voru talin 757 dýr. Árið 2012 voru talin 614 dýr, en fjöldin árin þar á undan hefur verið yfir 1000 dýr. Í tilkynningu Selasetursins segir að mikilvægt sé að hafa í huga að þessar talningar eru aðeins vísbending um lágmarksfjölda þeirra sela sem dvelja á þessu svæði. Margir þættir hafi áhrif á fjölda sela sem liggja uppi í látrunum hverju sinni og sé veður einn þeirra. Einnig segir að athuga beri að tölurnar segi ekki til um ástand landsselsstofnsins í heild.

Seinna í sumar verður landselsstofninn talinn í heild sinni úr lofti á vegum Selaseturs Íslands. Stofnstærðarmat á landsel fór síðast fram árið 2011 og hefur þar áður farið fram reglulega síðan árið 1980 og þá hefur verið talið um land allt úr flugvél. Niðurstöður talningarinnar frá 2011 benda til þess að landselstofninn hafi staðið í stað síðan árið 2003 og sé tæplega 12 þúsund dýr.

Selasetrið þakkar sjálfboðaliðum í gengum árin fyrir þátttökuna. Það er einnig þakklátt fyrir veitt leyfi landeiganda að telja í þeirra landi og einnig þakkar Selasetrið styrktaraðilum verkefnisins kærlega fyrir stuðninginn. Í ár voru styrktaraðilar verkefnisins eftirtaldir: Kaupfélag Vestur Húnvetninga, Hótel Hvammstangi, BBH útgerð, Söluskálinn Harpa og Brauð og kökugerðin Hvammstanga.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið