Fréttir | 29. júlí 2014 - kl. 13:31
Guðný Hrund Karlsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Húnaþings vestra. Á vef sveitarfélagsins segir að Guðný Hrund
hafi undanfarin tvö ár starfað sem verkefnastjóri hjá Wise í Kanada þar sem hún
hafi leitt innleiðingu stórra hugbúnaðarverkefna fyrir þarlend fyrirtæki. Áður
starfaði hún fyrir Maritech á Íslandi sem viðskipta- og verkefnastjóri.
Á árunum 2002-2006
starfaði hún sem sveitarstjóri á Raufarhöfn og stýrði sveitarfélaginu
farsællega á erfiðum tímum. Guðný Hrund hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar og
ábyrgðarstörfum, svo sem hlutverki hafnarstjóra, setið í stjórn Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins, í stjórn ábyrgðarsjóðs launa og sem varamaður í stjórn
samkeppniseftirlitsins. Hún er með Cand. Oecon próf í viðskiptafræðum af
fjármálasviði. Áformað er að hún hefji störf þann 1. ágúst 2014
Alls sóttu 30 aðilar um
starf sveitarstjóra í Húnaþingi vestra en þrír drógu umsókn sína til baka. Af
þeim 27 umsækjendum sem eftir stóðu voru 8 konur og 19 karlar.