Tilkynningar | 29. júlí 2014 - kl. 18:19
Vantar starfskraft

Fiskmarkað Íslands hf. vantar starfskraft á Skagaströnd. Starfssvið er m.a. þjónusta við viðskiptavini, seljendur og kaupendur, löndun o.fl. Viðkomandi er ætlað að vera hægrihönd stöðvarstjóra og getað leyst hann af. Viðkomandi þarf að hafa lyftararéttindi og hæfni til þess að læra á tölvukerfi fyrirtækisins.

Æskilegt væri að viðkomandi hefði þekkingu og starfsreynslu í sjávarútvegi og einnig vigtarréttindi en ekki skilyrði.

Umsóknarfrestur um starfið er til 5. ágúst n.k. og skal umsóknum skilað skriflega til Fiskmarkaðs Íslands hf., Reynis Lýðssonar 545 Skagaströnd sem jafnframt veitir upplýsingar um starfið í síma 840-3749 og Páll í síma 840-3702.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga