Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:54 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:54 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:54 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:54 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:54 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:54 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Dagana 26. og 27. júlí var haldið Landsmót í skotfimi á
Akureyri. Skotfélagið Markviss átti þar tvo keppendur þau Snjólaugu M
Jónsdóttur og Guðmann Jónasson. Til tilbreytingar þetta sumarið var veður með
besta móti en fyrir utan smá hitaskúr seinnipart laugardagsins var skotið í sól
og blíðu báða dagana.
Keppendur okkar áttu góðu gengi að fagna en Snjólaug
jafnaði Íslandsmet sitt frá því í fyrra í annað skipti í sumar og sigraði
kvennaflokkinn með 47 dúfum.
Guðmann var í 3ja sæti að fyrri degi loknum og mætti
vel einbeittur til leiks á sunnudeginum og vann upp forskot keppinautanna og
stóð að lokum uppi sem sigurvegari mótsins eftir harða keppni þar sem aðeins 1
dúfa skildi að efstu 4 keppendurna.
Keppnistímabilið
hingað til
Það
sem af er sumri hefur Skotfélagið Markviss átt keppendur á 6 mótum og hefur
gengi verið misjafnt,líkt og á síðasta keppnistímabili hefur veðurfar spilað
stórt hlutverk á mótum sumarsins t.d. fóru vindhviður í um 26 m á móti í
Hafnarfirði í byrjun júlí auk þess úrhelli hefur verið á flestum mótum það sem
af er sumri.
Á þessum mótum
hafa unnist 3 sigrar í kvennaflokk og 2 jafnanir á Íslandsmeti kvenna.
Í karlaflokki voru Guðmann og Brynjar hársbreidd frá
því að komast inn í úrslit á SÍH open í Hafnarfirði en það er alþjóðlegt mót
sem að haldið er árlega. En þeir enduðu í 7 sæti í A og B flokk
Á Íslandsmeistaramótinu gekk keppendum Markviss því
miður ekki allt of vel en þar endaði Snjólaug í 3 sæti í kvennaflokk og missti
því frá sér titilinn sem hún vann í fyrra, Guðmann hafnaði í fimmta Sæti,
Brynjar í átjánda og Sverrir Snær í 24 sæti.
Sverrir sigraði þó í sínum flokk og er því Íslandsmeistari í þeim flokk
árið 2014.
Framundan
Á
þessu tímabili er eitt landsmót eftir ásamt Bikarmeistaramóti,alþjóðlega mótið
„SR open“ í Reykjavík og svo er Norðurlandsmeistaramótið en þar takast
keppendur á Norðurlandi á um titilinn Norðurlandsmeistari. það mót verður
haldið á Akureyri að þessu sinni.
Eins og staðan er núna er Snjólaug með fullt hús stiga
til Bikarmeistara kvenna þar sem að hún
hefur sigrað á 3 mótum. Guðmann er með 35 af 45 stigum. En efsti maður
er með 42 stig.
Smáþjóðaleikar
Smáþjóðaleikarnir
verða haldnir á Íslandi í byrjun júní á næsta ári og er stefna félagsins að ná
inn fulltrúum í úrtökuhóp Skotíþróttasambandsins í bæði kvenna og
karlaflokki.Úrtökuhópinn munu skipa þeir einstaklingar sem hæstu meðalskor eiga
eftir yfirstandandi keppnistímabil.
Og svo að sjálfsögðu stefnum við á að eiga fulltrúa á
leikunum sjálfum á næsta ári.
Framkvæmdir
Eitthvað
er búið að vera af framkvæmdum hjá okkur á svæðinu í sumar. Mikið kapp var lagt
á að koma upp salernisaðstöðu fyrir mótið sem að var haldið hjá okkur 14-15
júní og var unnið baki brotnu í rúman mánuð til að það yrði að veruleika og er
salernisaðstaðan komin í notkun en eitthvað á eftir að klára innandyra og
verður gengið frá því á komandi vikum.
Einnig er búið að hæðarmæla allan völlinn hjá okkur.
Stefnan er að slétta völlinn og sá í hann grasi eða þökuleggja. Með því bætum
við heildarútlit svæðisins svo um munar auk þess sem sú framkvæmd mun draga ennfrekar
úr snjó og vatnssöfnun á og við völlinn.
(Þess má geta að
skotvöllur Markviss er eini skotvöllur á norðurlandi sem ekki fer á kaf í
fyrstu snjóum og því hægt að skjóta á honum allt árið ef að veður og birta leyfir).
Landsmót
50+
Eins
og flestir ef ekki allir húnvetningar vita þá verður Landsmót 50+ haldið á
Blönduósi á næsta ári ogstefnum við á að hafa keppni í skotfimi. Nú þegar hafa
ýmsar „gamlar kempur“ líst yfir áhuga á þátttöku.
Æfingabúðir
Segja
má að stjórn og keppnisfólk Markviss séu nú þegar farin að huga að næsta
tímabili og einn liður í því verða sameiginlegar æfingabúðir Skotf.Markviss og
Skotf. Akureyrar nú í september. Englendingurinn Allen Warren sem starfað hefur
með landsliðum víða um heim auk þess sem hann hefur um árabil verið einn af
aðalþjálfurum enska landsliðsins, mun koma til landsins og vinna með keppnisfólki
félaganna í 4 daga og stefnt er á að hann komi aftur þegar nær dregur næsta
tímabili til að koma keppendum í gírinn eftir veturinn.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |