Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:38 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:38 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:38 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:38 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:38 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:38 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ríkisútvarpið ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum að því er segir í tilkynningu frá stofnuninni. Framundan sé vinna við endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar á starfsemi Ríkisútvarpsins utan höfuðborgarsvæðisins.
Í tilkynningunni segir að svæðisstjóri Ríkisútvarpsins á Akureyri muni leiða breytingarnar sem framundan eru á starfsemi Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni. Hlutverk svæðisstjóra á Akureyri sé með nokkru breyttu sniði en hlutverk stöðvarstjóra hafi verið áður þar sem svæðisstjóri muni stýra starfsemi Ríkisútvarpsins á Akureyri sem og starfsemi á landsbyggðinni. Því hafi verið ákveðið að auglýsa starfið laust til umsóknar og er umsóknarfrestur til 1. september næstkomandi.
Í starfinu felst meðal annars ábyrgð á fréttaflutningi og dagskrárgerð svæðisstöðva í sjónvarpi, útvarpi og á vefnum. Ýmsar breytingar eru áformaðar, meðal annars verður lögð aukin áhersla á miðlun svæðisbundinna frétta á vef Ríkisútvarpsins.
Í tilkynningunni segir einnig að Ríkisútvarpið sé með fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum en starfsfólki Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni hafi fækkað umtalsvert á síðustu árum. Ný yfirstjórn RÚV hafi boðað að aukin áhersla verði lögð á landsbyggðina í starfsemi Ríkisútvarpsins. Endurskipulagning starfseminnar á Akureyri sé fyrsta skrefið í þá átt.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |