Fréttir | 19. ágúst 2014 - kl. 17:46
Ríkisútvarpið ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum að
því er segir í tilkynningu frá stofnuninni. Framundan sé vinna við
endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar á starfsemi
Ríkisútvarpsins utan höfuðborgarsvæðisins.
Í tilkynningunni segir að svæðisstjóri Ríkisútvarpsins
á Akureyri muni leiða breytingarnar sem framundan eru á starfsemi
Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni. Hlutverk svæðisstjóra á Akureyri sé með
nokkru breyttu sniði en hlutverk stöðvarstjóra hafi verið áður þar sem
svæðisstjóri muni stýra starfsemi Ríkisútvarpsins á Akureyri sem og starfsemi á
landsbyggðinni. Því hafi verið ákveðið að auglýsa starfið laust til umsóknar og
er umsóknarfrestur til 1. september næstkomandi.
Í starfinu felst meðal annars ábyrgð á fréttaflutningi
og dagskrárgerð svæðisstöðva í sjónvarpi, útvarpi og á vefnum. Ýmsar breytingar
eru áformaðar, meðal annars verður lögð aukin áhersla á miðlun svæðisbundinna
frétta á vef Ríkisútvarpsins.
Í tilkynningunni segir einnig að Ríkisútvarpið sé með
fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum en starfsfólki Ríkisútvarpsins á
landsbyggðinni hafi fækkað umtalsvert á síðustu árum. Ný yfirstjórn RÚV hafi
boðað að aukin áhersla verði lögð á landsbyggðina í starfsemi Ríkisútvarpsins.
Endurskipulagning starfseminnar á Akureyri sé fyrsta skrefið í þá átt.