Árný Lilja Árnadóttir og Aldís “sk Unnarsdóttir
Árný Lilja Árnadóttir og Aldís “sk Unnarsdóttir
Fréttir | 20. ágúst 2014 - kl. 18:42
Opna Fiskmarkaðsmótið 2014

Opna Fiskmarkaðsmótið í golfi, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli, Skagaströnd, laugardaginn 16. ágúst síðastliðinn. Mótið er þriðji hluti svokallaðar Norðvesturþrennu golfklúbbanna á Skagaströnd, Blönduósi og Sauðárkróki. Alls tóku 29 keppendur þátt í mótinu. Töluverður strekkingur og súld með köflum settu nokkurt strik í spilamennsku keppenda.

Úrslit urðu sem hér segir:

Kvennaflokkur – punktakeppni án forgjafar

  1. Aldís Ósk Unnarsdóttir       GSS    20 punktar

  2. Árný Lilja Árnadóttir          GSS    18 punktar

  3. Sigríður Elín Þórðardóttir    GSS    12 punktar

Karlaflokkur – punktakeppni án forgjafar

  1. Brynjar Bjarkason                  GÓS    20 punktar

  2. Magnús Gunnar Gunnarsson    GSS    20 punktar

  3. Adolf Hjörvar Berndsen            GSK    16 punktar

Blandaður flokkur - Punktakeppni með forgjöf

  1. Hafsteinn Pétursson           GÓS    34 punktar

  2. Adolf H. Berndsen             GSK    29 punktar

  3. Aldís Ósk Unnarsdóttir       GSS    28 punktar

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga