Fréttir | 20. ágúst 2014 - kl. 21:26
Sýning fjölþjóðlegra listamanna að Árbraut 35

Listamennirnir sem dvalið hafa í listamiðstöð Textílseturs Íslands í Kvennaskólanum í ágúst, munu standa fyrir sýningunni N2. Sýningin mun standa yfir fimmtudag, föstudag og laugardag 21.-23. ágúst frá kl. 13.00-17.00 að Árbraut 35.

N2 er sýning fjölþjóðlegra listamanna og er markmkið þeirra að veita íbúum Blönduóss og nágrenis upplifun á list, samtölum og hressingu þar sem gestir geta hlaðið batteríin í orkumikilli dreifingarmiðstöð að Árbraut 35. Allir velkomnir.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga