Fréttir | 22. ágúst 2014 - kl. 15:50
Körfuboltabúðir á Sauðárkróki
Frá Körfuknattleiksdeild Tindastóls

Körfuknattleiksdeild Tindastóls stendur fyrir körfuboltabúðum dagana 29. - 31. ágúst. Búðirnar eru opnar öllum börnum og unglingum fæddum á árunum 1997-2008, jafnt þeim sem æfa körfubolta nú þegar og þeim sem hafa hug á að kynnast íþróttinni. Ã†fingabúðirnar eru góður vettvangur fyrir nýja og áhugasama iðkendur til að öðlast meiri þekkingu á leiknum.

 

Yfirþjálfarar eru Kári Marísson og Israel Martin. Þeim til aðstoðar verða meðal annars aðrir þjálfarar körfuknattleiksdeildar.

 

Skráningarfrestur er til mánudags, 25. ágúst. Skráning sendist á karfan2014@gmail.com.   Gefa þarf upp nafn þátttakanda og fæðingarár, nafn og símanúmer foreldris/forráðamanns.

 

Gert er ráð fyrir að árgangar ´03-´08 fái fjórar æfingar yfir helgina og árgangar ´97-´02 fái fimm.

 

Endanleg dagskrá æfingabúðanna og hópaskipting verður sett inn þegar skráning liggur fyrir.

 

Þátttökugjald er kr. 2000 kr.

 

Sjá nánar á http://www.tindastoll.is/index.php?pid=2246

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga