Fréttir | 24. ágúst 2014 - kl. 23:16
Zumba námskeið á Blönduósi

Sex vikna Zumba námskeið hefst 9. september í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi ef næg þátttaka næst. Það er Linda Björk Ævarsdóttir, alþjóðlegur Zumba kennari sem heldur námskeiðið en tímarnir verða á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 19 til 20. Verð fyrir námskeiðið er 15.000 krónur.

Zumba er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna og að sjálfsögðu fyrir bæði kynin.

Greiðsla námskeiðsgjalda skal lokið fyrir 5. september næstkomandi. Skráning á lindabj@simnet.is eða í síma: 4522945 fyrir 2. september næstkomandi.

Dansaðu þig í form með einföldum sporum, skemmtilegri og fjörugri tónlist og góðum félagsskap.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga