Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:58 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:58 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:58 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:58 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:58 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:58 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Þar sem haustið er nú á næsta leiti er ekki úr vegi að minna á þær fjölmörgu réttir sem verða í Húnavatnssýslum. Eins og undanfarin ár má gera ráð fyrir að gestum sé sérstaklega boðið að taka þátt í göngum og réttum. Helstu fjárréttir má nefna Hamarsrétt, Miðfjarðarrétt, Auðkúlurétt, Undirfellsrétt, Stafnsrétt og Skrapatungurétt.
Um langt árabil hefur Bændablaðið tekið saman lista yfir helstu fjár- og stóðréttir á landinu. Réttarlistinn hefur nú verið birtur á vef Bændablaðsins en hann er með nokkuð breyttu sniði og í fyrsta sinn eru réttir um landið birtar á korti. Á vef Bændablaðsins segir að sú leið hafi verið farin að senda öllum sveitarfélögum í landinu póst þar sem farið var fram á upplýsingar um réttarhald í hverju sveitarfélagi. Það vinnulag hafi skilað góðum árangri í flestum tilfellum.
Rugludalsrétt fyrsta rétt haustsins
Fyrsta
rétt haustsins verður Rugludalsrétt í Blöndudal í Austur-Húnavatnssýslu en
réttað verður þar laugardaginn 30. ágúst. Upplýsingar um dagsetningar annarra
rétta í Húnavatnssýslum og við Hrútafjörð eru hér fyrir neðan í stafrófsröð
samkvæmt upplýsingum Bændablaðsins. Listi yfir helstu stóðréttir á landinu mun
birtast síðar.
Réttir
á Norðvesturlandi
Auðkúlurétt
við Svínavatn, A.-Hún., laugardaginn 6. sept. um kl. 8.00
Fossárrétt í A-Hún., laugardaginn 6.
sept.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún., laugardaginn 13. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún., laugardaginn 6. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Hún., laugardaginn 6. sept. um kl. 9.00
Hvalsárrétt í Hrútafirði, Strand., laugardaginn
20. sept. um kl. 16.00
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V.-Hún., laugardaginn 6. sept. um kl. 9.00
Rugludalsrétt í Blöndudal, A-Hún., laugardaginn 30. ágúst
Skrapatungurétt í Laxárdal, A.-Hún., sunnudaginn 7. sept. um kl. 10.00
Stafnsrétt í Svartárdal, A.-Hún., laugardaginn 6. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún., föstudaginn 5. sept. um kl. 12.00 og
laugardaginn 6. sept. um kl. 9.00
Valdarásrétt í Fitjárdal, V.-Hún., föstudaginn 5. sept. um kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún., laugardaginn 6. sept. um kl. 10.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún., laugardaginn 13. sept.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |