Myndir: Selasetur.is
Myndir: Selasetur.is
Fréttir | 14. september 2014 - kl. 15:06
Selatalningar úr lofti

Sérfræðingar Selaseturs Íslands á Hvammstanga vinna nú að selatalningu úr lofti. Slíkar talningar fóru síðast fram árið 2011 og var þá talið um allt land. Á vef Selasetursins kemur fram að ekki hafi fengist fjárveiting til talninga um allt land í ár og því sé ekki hægt að byggja stofnstærðarmat á þeim gögnum sem hafi safnast. Talningin í ár mun þó gefa vísbendingar um fjölda landsela í helstu látrum landsins.

Á vef Selasetursins segir að markmið talningarinnar í ár sé að prófa nýja aðferð sem í framtíðinni megi ef til vil nota við stofnstærðaráætlanir.  Fram til þessa hafi aðeins verið talið úr flugvél en í ár séu gerðar tilraunir með talningar með aðstoð ómannaðs loftfars og úr þyrlu til viðbótar við hefðbundnar talningar úr flugvél.  Ætlunin sé að bera saman þessar þrjár talningaraðferðir.

Þau svæði sem talið er á í ár eru: Akraós, Löngufjörur, Heggstaðanes, Hvammsfjörður, Vatnsnes, Strandir, Ísafjarðardjúp, Rauðisandur, Arnarfjörður og Suðurland. Verkefnisstjóri verkefnisins er Sandra Granquist og meðverkefnisstjóri er Erlingur Hauksson.

Efst til vinstri á meðfylgjandi mynd er Tryggvi Stefánsson sérfræðingur hjá Svarma með ómannaða loftfarið sem notað er við talningarnar. Á myndinni neðst til hægri er Erlingur Hauksson meðverkefnisstjóri og Sandra Granquist verkefnisstjóri.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga