Freyja Dögg Frímannsdóttir
Freyja Dögg Frímannsdóttir
Fréttir | 16. september 2014 - kl. 22:30
RÚV ætlar að efla starfsemi á landsbyggðinni

Freyja Dögg Frímannsdóttir hefur verið ráðin svæðisstjóri Ríkisútvarpsins á Akureyri (RÚVAK). Svæðisstjóri verkstýrir og ber ábyrgð á fréttaflutningi af landsbyggðinni í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum en Ríkisútvarpið er með fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum.  

Í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu kemur fram að stofnunin ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum og framundan sé vinna við endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar en Freyja mun leiða þessa vinnu. Svæðisstjóri mun stýra starfsemi Ríkisútvarpsins á Akureyri sem og annarri starfsemi á landsbyggðinni. Ýmsar breytingar eru áformaðar, meðal annars verður lögð stóraukin áhersla á miðlun svæðisbundinna frétta á vefnum.

Freyja Dögg starfaði um nokkurra ára skeið sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri auk þess sem hún hefur umtalsverða reynslu af verkefnastjórnun og vinnslu fyrir vef.  Hún er með meistaragráðu í upplýsingatæknifræði, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga