Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 18. september 2014 - kl. 07:14
Vígsla listaverksins Sólúrs á Hnappstaðatúni

Laugardaginn 20. september næstkomandi, klukkan 14:00, verður listaverkið Sólúr sem reist hefur verið á Hnappstaðatúni á Skagaströnd formlega vígt. Listaverkið er eftir hinn þjóðkunna listamann Magnús Pálsson og er tilvísun í samspil tímans og sólargangsins þar sem gömul eyktarmörk eru í heiðri höfð.

Listskreytingasjóður ríkisins leggur verkið til og kostar hina listrænu hlið málsins en sveitarfélagið hefur lagt til uppsetningu þess.

Vígsla verksins á Hnappstaðatúni er öllum opin og íbúar á Skagaströnd hvattir til að mæta og taka á móti listverki sem er líklegt að muni standa um langan tíma í miðju byggðarinnar. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga