Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:46 0 0°C
Laxárdalsh. 12:46 0 0°C
Vatnsskarð 12:46 0 0°C
Þverárfjall 12:46 0 0°C
Kjalarnes 12:46 0 0°C
Hafnarfjall 12:46 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 23. september 2014 - kl. 10:49
SO2-mælir settur upp í Húnaþingi vestra

Á allra næstu dögum mun Umhverfisstofnun í samstarfi við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra auka stórlega vöktun á styrk  brennisteinsdíoxíðs (SO2) frá eldgosinu í Holuhrauni. Keyptir hafa verið 40 mælar og verður mælingin í höndum þeirra sem starfa að almannavörnum á hverjum stað, s.s lögreglu. Nettengdir mælar verða settir upp á 20 stöðum á landinu og fljótlega bætast við 23 hreyfanlegir mælar og verður einn mælir staðsettur í Húnaþingi vestra, að því er fram kemur á vef Umhverfisstofnunar.

Við kaup á mælum var lögð höfuðáhersla á að kaupa mæla sem auðveldlega mætti koma fyrir á sem flestum stöðum um land allt til að tryggja sem þéttast mælinet á sem stystum tíma og kosturinn við að hafa þá hreyfanlega auðveldar einnig viðbragðsteymum að bregðast skjótt við ófyrirséðum aðstæðum.

Vegna eldgossins í Holuhrauni hefur undanfarið verið unnið að því að þétta net mælitækja sem mæla brennisteinsdíoxíð (SO2).  Við venjubundnar aðstæður hefur hefur SO2 nær eingöngu verið mælt í nágrenni stóriðjufyrirtækja. Eftir að eldgosið hófst og mengun frá brennisteinsdíoxíði er orðin raunverulegt vandamál í byggð skapaðist þörf fyrir að þétta mælinetið verulega og gera það hratt.

Almannavarnaryfirvöld í samráði við Umhverfisstofnun óskuðu eftir því við Landsvirkjun, Alcoa, Norðurál og Elkem að þessi fyrirtæki lánuðu hluta af sínum mælibúnaði til þessa verkefnis. Fyrirtækin brugðust mjög vel við þeim beiðnum og eru þeim færðar þakkir fyrir. Þá hafa Landsvirkjun, HS Orka og Orkuveita Reykjavíkur breytt sínum mælum sem þessi fyrirtæki höfðu til að mæla H2S (brennisteinsvetni) á jarðhitasvæðum til að mæla einnig SO2. 

Í dag birtir Umhverfisstofnun niðurstöður mælingar frá 10 SO2-mælum í rauntíma á heimasíðunni. Á næstu dögum munu gögn frá fleiri mælum bætast við. Nýju mælarnir eru þess eðlis að ekki er hægt að streyma mæligögnum samstundis á vefinn frá þeim en mælarnir verða vaktaðir og þegar þeir gefa til kynna hækkandi SO2 styrk verður almenningi tilkynnt um það. Áhersla er lögð á að geta upplýst landsmenn um hver gildin eru í þeirra heimabyggð.

Á næstunni verða því alls 20 mælar, sem eru á vegum ýmissa stofnana og fyrirtækja, með rauntímaupplýsingar um styrk SO2. Við það bætast síðan fljótlega 23 hreyfanlegir mælar sem dreift verður um allt land. Einnig verður Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra með 17 mæla á sínum snærum. Alls verða því 60 mælar í notkun um land allt að því er fram kemur á vef Umhverfisstofnunar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið