Fréttir | 24. september 2014 - kl. 09:01
Mótmælir aðför að launafólki

Stéttarfélagið Samstaða mótmælir harðlega  þeirri aðför að launafólki sem birtist í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. „Hækkun virðisaukaskatts á matvæli, skert réttindi atvinnulausra  og lækkun framlags ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða , eykur á byrðar lágtekjuhópa  og sýnir að  þeir eru ekki í forgangshópi ríkisstjórnarinnar,“ segir í ályktun sem stéttarfélagið hefur sent frá sér.

Í ályktuninni segir einnig að með þessu frumvarpi  sé ríkisstjórnin að gefa  samstarfi og samræðum við verkalýðshreyfinguna langt nef. Við þær aðstæður þurfi verkalýðshreyfingin að svara þeim skilaboðum  skýrt og búa sig undir harðari deilur við gerð kjarasamninga en verið hafi um langa hríð.

„Félög innan ASÍ hafa sýnt mikla ábyrgð við gerð samninga á undanförnum árum.  Þau eiga ekki að bera hana ein  í þjóðfélagi  sem vill byggja á jöfnuði  og sanngirni fyrir þegna sína,“ segir í ályktun Samstöðu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga