Tilkynningar | 24. september 2014 - kl. 09:31
Vinnukvöld Björgunarfélagsins Blöndu á miðvikudagskvöldum í vetur
Tilkynning frá stjórn

Vinnukvöld Björgunarfélagsins Blöndu hefjast miðvikudaginn 24. september og verða þau kl. 20:00 á miðvikudögum í vetur. Við skorum á félagsmenn að vera duglega að mæta og taka þátt í starfinu. Alltaf er nóg af verkefnum enda er mikið starf að halda úti heilli björgunarsveit með öllum tækjum, tólum, húsakosti o.s.frv.

 

Einnig er stefnt að því að taka reglulega á miðvikudögum léttar/styttri æfingar. Nýir félagsmenn og aðrir velunnarar eru einnig að sjálfsögðu velkomnir, alltaf heitt á könnuni og einstaka sinnum nýbakaðar kleinur. 

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga