Kántrýbær
Kántrýbær
Þórarinn fyrir utan Borgina. Skjáklippa úr Morgunblaðinu í dag.
Þórarinn fyrir utan Borgina. Skjáklippa úr Morgunblaðinu í dag.
Fréttir | 24. september 2014 - kl. 10:17
Nýr veitingastaður á Skagaströnd

Í byrjun mánaðarins opnaði Þórarinn Ingvarsson matreiðslumaður veitingastaðinn Borgina, í húsnæði Kántríbæjar á Skagaströnd og er staðurinn nefndur eftir Spákonufellsborg. Þórarinn er fæddur og uppalinn á Skagaströnd en flutti þaðan árið 1987 og hóf matreiðslunám stuttu seinna. Hann sá tækifæri í því að nýta sér kunnáttu sína og reynslu sem hann hefur aflað sér og er nú kominn aftur heim á Skagaströnd.

Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá opnun staðarins og þar er rætt við Þórarinn sem bjó í sjö ár í Danmörku þar sem hann vann á krá, grillhúsi, á smurbrauðsstað, fínu hóteli og í Messecenter í Hernig sem er risastór sýninga- og ráðstefnustaður.

Eftir að Þórarinn flutti aftur til Íslands var hann yfirkokkur á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit og eitt ár á Sel hóteli við Mývatn. Að því búnu fluttist hann aftur til Skagastrandar. „Staðnum hér hafði verið lokað og ég hugsaði með mér: því ekki að nota tækifærið, nýta alla þá kunnáttu og reynslu sem ég hef aflað mér og fara aftur heim? Ég hef fengist við að grilla hamborgara, útbúa fínustu rétti á gæðaveitingastöðum og allt þar á milli – og hér verður allt í boði; við erum með hamborgara, pitsur, grillsteikur, ég tek að mér veislur, verð með villibráðarhlaðborð og jólahlaðborð.

Stolt staðarins er þó að sjálfsögðu ferskur fiskur úr flóanum; fiskur sem ég ber fram, snarkandi heitan á pönnu. Það er unun að geta boðið upp á slíkt,“ segir Þórarinn í viðtali við Morgunblaðið í dag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga