Fréttir | 25. september 2014 - kl. 23:05
Auglýsing á deiliskipulagi við Norðurlandsveg

Á vef Blönduósbæjar er auglýst tillaga að deiliskipulagi við Norðurlandsveg fyrir athafna- og iðnaðarsvæði, verslun og þjónustu og þjónustustofnun samkvæmt skipulagslögum. Tillagan er í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar Blönduósbæjar frá 9. september síðastliðnum og samanstendur hún af skipulagsuppdrætti, greinargerð og skýringarmyndum. Allar  meginforsendur deiliskipulagsins eru í samræmi við Aðalskipulag Blönduóss 2010–2030.

Tillagan liggur frammi til kynningar frá 24. september til 5. nóvember næstkomandi á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi. Einnig er tillagan aðgengileg á vef sveitarfélagsins

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 6. nóvember næstkomandi til skrifstofu  Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni, að því er segir í auglýsingu frá Blönduósbæ.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga