Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Fréttir | 29. september 2014 - kl. 20:17
Árleg inflúensubólusetning

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi auglýsir árlega inflúensubólusetningu haustið 2014 en bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi og á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd. Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir áhættuhópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald, segir í auglýsingu frá heilbrigðisstofnuninni. Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.

Bólusett verður á Heilsugæslunni á Blönduósi:
Mánudaginn 6/10 kl: 11:30-13:00
Miðvikudaginn 8/10 kl: 13:00-15:00
Mánudaginn 13/10 kl: 14:00-15:00

Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd
Þriðjudaginn 7/10 kl: 11:00-12:30
Þriðjudaginn 14/10 kl: 9:00-10:00

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga