Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:44 0 0°C
Laxárdalsh. 18:44 0 0°C
Vatnsskarð 18:44 0 0°C
Þverárfjall 18:44 0 0°C
Kjalarnes 18:44 0 0°C
Hafnarfjall 18:44 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 29. september 2014 - kl. 20:24
Hér var ég skorin
Eftir Jón Bjarnason

„Hann Páll Kolka langafi virðist hafa skorið upp aðra hverja manneskju hér á Blönduósi“ sagði dóttir mín Katrín Kolka,  þegar hún kom heim eftir fyrsta daginn í vinnu á Héraðshæli Húnvetninga á Blönduósi fyrir nokkrum árum.

Starfsþjálfunin þar var hluti af hjúkrunarnámi Katrínar. „Það þyrptist að mér allt eldra fólkið til að sýna mér stolt örin, þar sem Páll skar,“ sagði Katrín með aðdáun.

Páll V.G. Kolka var héraðslæknir Húnvetninga frá 1934 til 1959 en hafði áður verið héraðslæknir í Vestmannaeyjum. Hann var einn sá fyrsti sem fór í sérnám erlendis í skurðlækningum. Sú þekking nýttist honum vel, bæði sem héraðs - og sjúkrahúslæknir í áratugi

Já, vissulega eru breyttir tímar og tækni og krafan um sérþekkingu er önnur en þá. Hins vegar breytast ekki væntingarnar um félagslegt öryggi, trúnað og traust, hlýju og nærgætni heilbrigðisþjónustunnar.

Þeir tímar koma að vísu ekki aftur þar sem læknirinn bjó í sjálfur í sjúkrahúsinu og eiginkonan bauð sjúklingunum inn til sín í kaffi meðan þeir biðu. Sjúklingarnir fundu að þeir voru í öruggum höndum og tekið yrði heildstætt á því sem hrjáði þá. Þörfin fyrir öryggið og það að finna að allt sé gert til að sjúklingnum líði sem best og hann leiddur í gegnum það sem þarf er þó áfram fyrir hendi. Ekkert er verra sjúklingi en finna til óöryggis og fálms eða vera skilinn eftir eftir á miðjum gangi og vita ekki hvert á að fara næst.

Það hafa ekki allar heilbrigðisstofnanir stóra „mömmu“ eins og frú Guðbjörg Kolka var Páli eignmanni sínum í þjónustunni við Húnvetninga. Eitt er víst að sjúklingur vissi oft ekki hvort hafði borið meiri árangur, kaffið og hughreystingarorð frú Guðbjargar Kolka eða færar læknishendur Páls. En saman veittu þau sjúklingnum bæði öryggi og þá meinabót sem mögulegt var að veita.

 Ósjaldan dvaldi fólk um tíma á heimili þerra hjóna og fékk aðhlynningu og í hjónarúminu fæddi kona barn er þröngt var á spítalanum.

Oft var komið með litla stúlku eða lítinn dreng til lengri eða skemmri dvalar á heimili þeirra, ef ástæður voru erfiðar heimafyrir.

Læknirinn gerði sér grein fyrir að þau gátu verið mörg meinin þótt aðeins eitt væri sýnilegt í það skiptið. Engu að síður er það þessi heildstæða yfirsýn, nærgætni og læknisfræðileg færni sem sjúklingar eru að leita eftir þegar hjálpar er leitað. Spor sjúklings til læknis,  í rannsókn eða á sjúkrahús eru oft þung og hlaðin óvissu um hvað tekur við.

Páll Kolka læknir signdi sig og fór með bæn áður en ráðist var í stóraðgerð. Ekki veitti af öllum styrk og krafti og honum farnaðist afar vel í læknisverkum sínum: „Sjáðu hérna var það, sem Páll Kolka héraðslæknir Húnvetninga skar mig.“

Páll Kolka teiknaði og stýrði byggingu Héraðshælisins á Blönduósi, stolti Húnvetninga. Nú stendur nánast ónotuð fullbúin skurðstofa á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi .

Mér kemur þetta í hug eftir umræðuna um heilbrigðismálin síðustu daga og vikur, stöðu þeirra og skipulag. Áfram hriktir alvarlega í grunnstoðum heilbrigðisþjónustunnar og innviðum hennar. Áratuga uppbygging og þróun þessar þjónustu hefur í ýmsu  molnað og holast um of að innan á síðastliðnum tuttugu árum. Þar bera stjórnvöld höfuðábyrgð. Hinsvegar hafa tækniframfarirnar orðið miklar og möguleikarnir til lækningar orðnir fleiri. Þeim möguleikum þarf að finna sem bestan farveg okkur öllum til velfarnaðar.

Ég held þó að löggjafinn hafi gert alvarleg mistök við samþykkt laganna frá 2003 um heilbrigðisþjónustu þar sem hugtakinu þjónustu var skipt út fyrir heilbrigðisrekstur. Þótt rekstrarhugtakið í heilbrigðisþjónustu sé mikilvægt missir það  inntak sitt ef metnaðurinn, þjónustuhugtakið og auðmýktin er ekki í fyrirrúmi. Nærþjónustan, heilsugæslulæknirinn,  „gamli héraðslæknirinn“  sem þekkti sjúklinginn og heimilishagi hans, gegnir áfram lykilhlutverki í að halda utan um einstaklinginn í heilbrigðisþjónustu landsmanna

Sem betur fer er áfram við lýði sama kærleikshugsjón heilbrigðisþjónustunnar og ríkti á stofu og í eldhúsi læknishjónanna á Blönduósi, Páls og Guðbjargar Kolka þótt í öðru formi sé.

En  hana þarf að rækta og hlúa að. Í því felst ákall svo margra í dag.  Þar liggur forgangsröðunin, hugsjónin sem leggur grunninn að farsælli heilbrigðisþjónustu landsmanna.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið