Fréttir | 02. október 2014 - kl. 07:55
Hrútavinir í Eyvindarstofu í dag

Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi efnir til rútuferðar á Hrútadaginn mikla á Raufarhöfn sem er hátíðlegur haldinn laugardaginn 4. október næstkomandi.  Ferðin í heild verða fjórir dagar, 2.-5. október og verður m.a. komið við á Staðarskála í Hrútafirði, Hvammstanga, Blönduósi, Sauðárkróki og Hólum í Hjaltadal.

Samkvæmt tilkynningu frá félaginu verður sauðurinn Gorbi frá Brúnastöðum með í för sem mun setjast að á forystufjársafninu á Svalbarði í Þistilfirði. „Góð þátttaka er í ferðina og lagt verður upp frá Stað á Eyrarbakka fimmtudaginn 2. október næstkomandi klukkan 8 að morgni með rútu frá Allrahanda,“ segir í tilkynningunni.

Komið verður við á Höfða í höfuðborginni. Síðan á höfuðstöðum héraðanna á leiðinni og blásið til umræðu og hátíðahalda um sauðkindina og vitsmuni forystufjárins . Þar á meðal; Hvanneyri, Bifröst,  Staðarskála í Hrútafirði, Hvammstanga, í Eyvindarstofu á Blönduósi, Sauðárkróki, Hólum í Hjaltadal, Hofi á Akureyri, Laufási, Húsavík, Kópaskeri, Raufarhöfn og Svalbarði í Þistilfirði og víðar.

„Góðir leiðsögumenn verða með í ferðinni og margt gert sér til skemmtunar með fólkinu í landinu,“ segir loks í tilkynningunni en fararstjórar verða Guðni Ágústsson, Níels Árni Lund og Björn Ingi Bjarnason.

Hópurinn verður í Eyvindarstofu á Blönduósi milli kl.  17:00 og 18:30 í dag fimmtudag og eru allir velkomnir til að eiga góða stund með hópnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga