Fréttir | 21. október 2014 - kl. 21:18
Haldið verður foreldranámskeið á heilsugæslustöðinni á Blönduósi dagana 10., 12., 17. og 19. nóvember næstkomandi frá klukkan 17 til 19. Leiðbeinendur eru Sesselja Kristín Eggertsdóttir og Helga Hreiðarsdóttir, hjúkrunarfræðingar.
Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig hægt sé að:
-
Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika.
-
Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni.
-
Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu.
-
Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt.
-
Kenna börnum mikilvæga færni.
-
Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi.
Námskeiðið kostar kr. 9.300- á einstakling / 11.500- á par. Uppeldisbókin kr. 3.000-. Athugið að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaðinum. Skráning hjá Kristínu sími: 892 2584, netfang: sesselja.eggertsdottir@hve.is eða hjá Helgu sími: 864 8951, netfang: helga.hreidarsdottir@hve.is. Skráning þarf að fara fram fyrir 1. nóvember.