Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:08 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:08 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:08 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:08 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:08 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:08 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Fyrirkomulag rjúpnaveiða á afréttarlöndum Húnaþings vestra á komandi veiðitímabili hefur verið ákveðið. Þess er vænst að veiðimenn virði fyrirkomulagið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.
Fyrirkomulag rjúpnaveiða á afréttarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2014:
-
Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða á afréttarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði.
Svæðin eru:
a) Víðidalstunguheiði ásamt Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-HvarfiogÖxnatungu.
b) Arnarvatnsheiði og Tvídægra. -
Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2014 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Ekki er um að ræða sölu á dagsleyfum.
-
Veiðileyfin verða til sölu á skrifstofu Húnaþings vestra á Hvammstanga, hjá Ferðaþjónustunni Dæli og Söluskálanum Hvammstanga. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000-.
-
Fjöldi veiðimanna á veiðisvæðin verður ekki takmarkaður, en tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að benda þeim er fara á veiðisvæði án leyfis á að nærveru þeirra sé ekki óskað á veiðisvæðinu. Veiðimenn eru einnig hvattir til að tilkynna slík tilfelli til skrifstofu Húnaþings vestra.
-
Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.
Rjúpnaveiði í Víðidal
Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal verður eins og undanfarin haust takmörkuð. Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is Allar upplýsingar um rjúpnaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |