Fréttir | 29. október 2014 - kl. 20:29
Æfingar að hefjast í 8. flokki í knattspyrnu

Fyrir nokkru hófust æfingar að nýju hjá knattspyrnudeild Hvatar þ.e. 3., 4. og 5. flokkur karla og kvenna en þjálfari er Heimir H. Garðarsson. Þann 5. nóvember hefjast svo æfingar hjá 8. flokki en æfingar verða alla miðvikudaga og hefjast kl. 17:00.

Allir krakkar fæddir 2009, 2010 og 2011 eru velkomnir. Verð fram að áramótum verður 3.000 kr. 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga