Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:00 0 0°C
Laxárdalsh. 08:00 0 0°C
Vatnsskarð 08:00 0 0°C
Þverárfjall 08:00 0 0°C
Kjalarnes 08:00 0 0°C
Hafnarfjall 08:00 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 30. október 2014 - kl. 07:06
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi
Frá Markaðsstofu Norðurlands og Ferðamálafélagið A-Hún.

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin fimmtudaginn 23. október síðastliðinn. Að þessu sinni var ferðinni heitið í Austur-Húnavatnssýslu og tóku heimamenn vel á móti gestunum sem voru yfir 100 ferðaþjónustuaðilar frá öllu Norðurlandi. Meðal staða sem hópurinn sótti heim var Hótel Blönduós, Heimilisiðnaðarsafnið  þar sem við kynntumst Halldóru Bjarnadóttur, Textílsafnið sem skartaði refli um Vatnsdælu sem er enn í vinnslu.

Spákonuhof tók vel á móti gestum á Skagaströnd, og  þar bauð svo nýi veitingastaðurinn Borgin hópnum heim. Laxasetur Íslands og Ísgel fræddi gestina um starfsemina og áður en kvöldið var úti heimsóttu gestir Eyvindarstofu og þáðu þar góðar veitingar og glæsilega sundlaug Blönduósbúa. Austur Húnavatnssýslur  hafa mikið upp á að bjóða og ekki náðist að kanna alla þá fjölbreyttu þjónustu og afþreyingu sem þar er á einum degi.

Að lokum var svo snæddur kvöldverður í félagsheimilinu á Blönduósi og dansað við undirleik Geirmundar Valtýssonar fram á nótt. Eins og venja er á uppskeruhátíð sem þessari, veitti Markaðsstofan viðurkenningar sem voru eftirfarandi:

Viðurkenningu fyrir Sprota ársins fékk Spákonuhof á Skagaströnd og veitti Dagný Marín Sigmarsdóttir viðurkenningunni móttöku. Sproti ársins er veittur eftirtektarverðri nýjung á Norðurlandi.

Viðurkenningu sem fyrirtæki ársins fékk Bílaleiga Akureyrar - Höldur en þessi viðurkenning er veitt til fyrirtækis sem hefur skapað sér stöðu á markaði og hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun. Við viðurkenningunni tók Þórdís Bjarnadóttir bókunarstjóri fyrirtækisins.

Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls hlýtur viðurkenningu fyrir ötul störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi. Guðmundur Karl tók við stöðu forstöðumanns Hlíðarfjalls árið 2000 og hefur unnið að krafti að því að byggja upp Hlíðarfjall sem vinsælasta skíðasvæði landsins.

Frábær dagur í alla staði.

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið