Fréttir | 30. október 2014 - kl. 21:46
Hittingur í Perlunni um helgina

Mánaðarlegur hittingur hjá brottfluttum húnvetnskum konum verður í Perlunni á laugardaginn 1. nóvember og er mæting kl. 12:00. Á þessum hittingum er mikið spjallað og sögur sagðar af öllu mögulegu og ómögulegu. Alltaf gaman að sjá ný andlit og tilvalið fyrir konur sem ætla að skreppa í borgina um helgina að líta við í Perlunni og fá sér hádegismat og létt spjall.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga