Þjóðskjalasafnið við Laugaveg. Mynd: Skjalasafn.is
Þjóðskjalasafnið við Laugaveg. Mynd: Skjalasafn.is
Fréttir | 17. nóvember 2014 - kl. 12:54
Sögufélagið Húnvetningur heldur fund í Þjóðskjalasafninu
Frá Sögufélagsmönnum

Sögufélagið Húnvetningur auglýsir fund laugardaginn 22. nóvember í Þjóðskjalasafninu við Laugaveg 162. Sagnfræðingarnir Jón Torfason og Unnar Ingvarsson hafa framsögu á fundinum. Þar verður kynnt ný bók Hallgríms Gíslasonar: Klénsmiðurinn á Kjörvogi, sem er um Þorstein bónda og smið í Kjörvogi, manns með læknishendur, son Þorleifs á Hjallalandi og Skáld-Helgu konu hans.

Viðfangsefni Jóns verður visitasía Gísla biskups Magnússonar, þess sem stóð að byggingu dómkirkjunnar á Hólum, sem nú prýðir staðinn og Hjaltadal.  http://is.wikipedia.org/wiki/G%C3%ADsli_Magn%C3%BAsson_%28biskup%29

Unnar fjallar um fræðimann í Vatnsdal: Daða hinn fróða Davíðsson á Gilá. Húnvetningur býður áhugamenn um sagnfræði og menningu við Húnaflóa velkomna á fundinn sem hefst klukkan 14.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga