Héraðsbókasafn A.-Hún. Mynd: Blonduos.is
Héraðsbókasafn A.-Hún. Mynd: Blonduos.is
Fréttir | 17. nóvember 2014 - kl. 17:00
Bókasafnið opið tvo laugardaga fyrir jól

Í tilefni af því að jólabækurnar eru farnar að koma í Héraðsbókasafn Austur-Húnavatnssýslu á Blönduósi ætlar safnið að hafa opið tvo laugardaga fyrir jól, þann 22. nóvember og 13. desember frá klukkan 10 til 16. Laugardaginn 22. nóvember klukkan 15 mun Halla Bernodusdóttir lesa upp úr skemmtilegum barnabókum og þann 13. desember mun forstöðumaður bókasafnsins kynna nokkrar nýútkomnar jólabækur.

Heitt verður á könnunni og eru allir velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga